Ljósmynd: Ráðherrabústaðurinn
Eins og margir vita þá er ég pípari og fyrir nokkrum árum fekk ríkisstjórnin mig til að endurnýja allar lagnir í Ráðherrabústaðnum.
Þetta var töluverð vinna og ég fékk nokkra Pólverja á vinnuleigu til að vinna verkið. Verkefnið gaf vel af sér og flutti ég allan hagnaðinn af því til útlanda.
Ráðherra greiddi með ánægju og þakkaði mér vel fyrir.
En nú víkur sögun að síðustu viku. Ráðherra hringir í mig og sakar mig um handvömm því allar lagninnar séu ónýtar og ekki bara það heldur eyðilagðist allt húsið meira og minna í lekanum.
Ég fór í það að róa ráðherrann og sagði honum að það væri ekkert mál að laga þetta. Á meðan á viðgerð stæði væri engin ástæða til að leita að sökudólgum, hann yrði bara að hafa það hugfast að hann þyrfti að borga viðgerðina og fullt kaup fyrir mig og vinnumenn mína. Reyndar yrði þetta töluvert dýrt því nú væru ekki hægt að fá Pólverja. Þeir eru nefnilega allir flúnir landið.
Hann maldaði móinn en ég lagði mikið á mig til að sannfæra hann um að nú þurfi menn að fylkja sér saman og ekki vera stöðugt að benda á ábyrgðir og sökudólga og benti á hliðstæð dæmi sem ég hafði lent í.
Ráðherra benti mér þá á að betra væri fyrir mig að ráða mér tvo lífverði, því hugsanlega yrði Sérsveitum vísað á mig.
Þótt hann hafi enga trú á mér er ég samt að gera við Ráðherrabústaðinn og ríkið verður að borga allan brúsan.
Ég reyndar hálf vorkenni Ráðherra því hugsanlega missir hann Ráðherrabústaðinn líka út af óvæntum kostnaði.
Er ekki gott að búa á Íslandi og vera Íslendingur þar sem fegurðin er óendanleg og dugnaður landans endalaus auðlind, þar sem embættis og ráðmenn bera ekki ábyrgð og réttur almennings nánast enginn. Og nú ríður á að fylkja sér saman til að nýta sér dugnaðinn og afneitun Íslensku þjóðarinnar við að skoða fegurðina það er ekkert mál að lifa á því þegar allt annað er þrotið
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 11.10.2008 | 20:48 | Facebook
Nýjustu færslur
- 9.9.2011 Jón Gnarr
- 5.9.2011 Kvótakaup Þjóðverja.
- 20.2.2011 "Fúskarar"
- 10.4.2009 Rangt Stöðumat
- 24.2.2009 Byrðar hrunsins
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.