Handvömm eða Vítavert gáleysi

Fyrir skömmu voru samþykkt neyðarlög um banka.

Þessi lög standast enga nákvæma skoðun eins og er nú að koma í ljós. Lögin munu skapa háar skaðabótakröfur á íslenska ríkið. 

Staðan er það alvarleg að Ríkisstjórnin verður að segja af sér. Það væri  liður í  tilraun til að vinda ofan af keðju mistaka sem ríkisstjórnin hefur gert síðustu daga vitandi eða óafvitandi. Það eru að öllum líkindum aðeins tveir möguleikar í stöðunni.


Sá fyrsti er að fá hér Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að bjarga málunum, hinn er sá að mynda nýja ríkisstjórn og þá helst þjóðstjórn. Þessi stjórn myndi leggja öll spil á borðið og  mæta vandanum á siðmenntaðan hátt.  Með þessum hætti er hugsanlegt að við náum með hjálp frænd og vinaþjóða að semja okkur út úr þessu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband