Umhverfisráðherra og Stjórnarskrárbrot

  

Veiðivötn


 

 

 

 

 

 

Ákvörðum umhverfisráðherra um heildstætt umhverfismat vegna álvers á Bakka er brot á nokkrum mikilvægum grunnreglum.

Fyrst má telja jafnræðisregluna sem er bundin í stjórnarskrá. Rökstuðningurinn fyrir því er einfaldur. Önnur álver og framkvæmdir eins og vegir og jarðgöng hafa ekki þurft að sæta þessari meðferð til þessa. Hér er einnig um að ræða viðskipta og samkeppnishindrun því hvernig ætti álverið að hafa frelsi til að versla við aðra virkjanir eða aðra orkukosti til að ná sem hagkvæmustum verðum.

Annað brotið er á sviði stjórnsýslulaga . Hér er átt við meðalhófsreglu. Það er ljóst að þegar umhverfismat er komið á lokastig þá er það brot á meðalhófi að krefjast óvæntrar kúvendingar sem getur tafið málið allverulega.

Það er nauðsynlegt í þessu samhengi að gera grein fyrri því að ofangreind atriði eru komin í okkar lög fyrir atbeina Evrópusambands. Þetta er talinn vera ein mesta réttarbót fyrir hönd almennings í sögu lýðveldisins.

Hvernig má það vera að samfylkingin sem talar fyrir aðild að Evrópusambandinu á tyllidögum brýtur sífellt gegn þessum einföldu grunnatriðum?. Getur verið að Evrópuhugsjónin risti ekki mjög djúpt hjá Samfylkingunni þegar hátíðisdögunum sleppir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sigurgeirsson

Þetta er nú bara skolli vel fram sett hjá þér.

Jón Sigurgeirsson , 5.8.2008 kl. 00:23

2 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Já myndin er tekin af sérfræðing. !

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 5.8.2008 kl. 01:37

3 identicon

Sæll þorsteinn.

Ég er nú ekki inní þessu heilsteypta vel framsetta tungumáli hjá þér, og þyrfti eflaust orðabók til að skilja samhengið og að horfa eitthvað á fréttir, sem ég geri mjög sjaldan. En ég skil þetta þannig, að þú segir að samfylkingin gerir bara hluti þegar vel gengur hjá þeim, fer eftir reglum og svona.. en þegar illa gengur, er ekki hægt að treysta á það sama(þegar hátíðardögum líkur)

Ég afsaka ef ég hljóma heimskulega, þú ert með skemmtileg skrif, og þeir sem lesa þetta hafa eflaust meiri skilning á lestri en ég.

takk fyrir

Daníel Þórhallsson 5.8.2008 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband